BCCFS logo web

  • Skelltu þér á sumartilboð CrossFit Stöðvarinnar!
    • Team Thor - Undirbúningur fyrir CrossFit Games
      Team Thor - Undirbúningur fyrir CrossFit Games

      Núna þegar aðeins mánuður er þangað til Team Thor leggur af stað til LA í Bandaríkjunum að keppa á CrossFit Games þá fannst okkur við hæfi að setja inn smá frétt um undirbúning liðsins.

      24.-26. maí fór fram Evrópumótið í CrossFit þar sem Team Thor landaði 2. Sæti og tryggði sér þar með þátttökurétt á CrossFit Games heimsleikunum sem fram fara í júlí. Á hverjum degi síðan þá hafa farið fram stífar æfingar hjá öllum liðsmönnum. En í liðinu eru 6 manns, 3 karlar og 3 konur, auk varamanna.

      Fyrir tímabilið frá Evrópumóti að heimsleikum þá var ákveðið að liðið myndi fá sér þjálfara til að skipuleggja æfingarnar og stýra álaginu fram að heimsleikunum. Þjálfarinn sem liðið fékk sér heitir Jeremy kinnick, en hann hefur keppt fjórum sinnum í einstaklingskeppni á heimsleikunum og hann á og rekur Crossfit Kinnick í Californiu.

      Jeremy prógrammar liðaæfingar 2x í viku og svo fær hver og einn liðsmaður einstaklingsprógramm. Daníel hefur svo séð um að skipuleggja og halda utan um hópinn á liðaæfingunum.

      Æfingarnar eru 6-7x í viku, suma daga eru teknar 2 æfingar á dag. Liðaæfingar eru 2x í viku og þess á milli fylgjum við einstaklingsprógramminu okkar. Þegar álagið er svona mikið þá skiptir hvíldin jafn miklu máli og æfingarnar það eru teknir 2 dagar í hvíld í viku. Annan daginn þá er virk hvíld þar sem tekið er létt skokk, róður eða sund og gerðar liðleikaæfingar, við vorum svo heppin að fá Sigurstein til liðs við okkur og hefur hann verið með okkur 1x í viku og stjórnað liðleikaæfingum og teygjum, hinn hvíldardagurinn er nýttur í nudd og slökun.

      Næringin skiptir ekki síður máli þegar álagið er eins mikið og raun ber vitni. Við erum flest á 80-100% paleo og pössum við mikið uppá að nærast vel. Fæðan okkar samanstendur aðallega af kjöti, fisk, grænmeti, ávöxtum og hnetum og fræjum. Flestir eru með 1 svindldag í viku annars passa allir að halda sykri og unninni vöru í algjöru lágmarki sérstaklega núna síðustu vikur fyrir mót.

      Það að vera í liði reynir mikið á að einstaklingarnir vinni vel saman. Við þekkjumst öll  mjög vel og hafa liðaæfingarnar gengið mjög vel. Við höfum lært mikið á því að æfa saman og höfum við hjálpað hvort öðru með ýmislegt.

      Í liðawodum þarf maður að setja sig í annan gír miðað við einstaklingswod. Í liðawodunum reynir meira á að maður geti unnið mjög hratt í stuttann tíma og tali vel saman því skiptingar skipta miklu máli. Einnig þarf að þekkja einstaklingana vel til að raða réttum einstaklingum í hvert wod fyrir sig og það hefur Danni séð um og gert mjög vel.

      Heimsleikarnir fara fram 26.-28. Júlí og verður hægt að fylgjast vel með LIVE á netinu.

      Liðið er með flotta stuðningsaðila á bakinu m.a.fengum við styrk frá veitingastaðnum Gló og förum við nánast daglega þangað að borða, enda mjög hrein og góð fæða þar. Hópurinn er svo styrktur bæði af Hreysti og Now og hafa þeir séð um að styrkja okkur með fæðubótarefni. 

      Flotta stuðningsmannaboli má fá í afgreiðslu CrossFit Stöðvarinnar í Elliðaárdal, aðeins 3.500kr og þú styrkir liðið í ferð sinni út! 

      Við höldum áfram að æfa stíft á hverjum degi fram að móti og þökkum ykkur öllum fyrir sýndann stuðning!


      Team Thor!

       

       

      Skrifað á: Miðvikudagur, 19 Juní 2013 17:29 Lesið 361 sinnum
    • WOD - fimmtudagur/föstudagur 20.-21. júní
      WOD - fimmtudagur/föstudagur 20.-21. júní

      Tækni/Styrkur: Frjáls tími að æfa sig í þessu "complexi" 15-25 mínútur! 3 - Position Snörun - DEMO

      WOD: 8 min AMRAP


      Level1:
       

      buy in: 10 snaranir frá gólfi @ 60% af 1RM
      Restin af tímanum er AMRAP af: 

      20 Double Unders
      8 Front Squats (Snatch þyngdin)
      8 Axlapressur með 2x ketilbjöllum 


      Level2: 

      buy in: 10 snaranir frá gólfi @ 60% af 1RM
      Restin af tímanum er AMRAP af: 

      20 Double Unders
      8 Front Squats (Snatch þyngdin)
      4 HSPU með skífu undir höfði

       

      Level3: 

      buy in: 10 snaranir frá gólfi @ 60% af 1RM
      Restin af tímanum er AMRAP af: 

      25 Double Unders
      8 Front Squats (Snatch þyngdin)
      4 HSPU


       

      Skrifað á: Miðvikudagur, 19 Juní 2013 17:34 Lesið 52 sinnum

CrossFit Stöðin  |  Rafstöðvarvegi 9a  |  This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.  |  Sími: 517 6070

Opið 06:00-21:30 virka daga, 08:30-16:00 á lau og 09:00-15:00 á sun

CrossFit Journal: The Performance-Based Lifestyle Resource